Hver dagurinn öðrum líkur

Það er merkilegt hvað ég blogga lítið þó að mig finnist gaman að fylgjast með því sem er að gerast hjá öðrum!!

Það er svo hræðilega kalt þessa dagana og ég finn svo vel hve rafmagnskynding er í raun léleg kynding. Við keyptum nýjan ofn í haust og bættum honum við en samt er ferlega kalt í húsinu þessa dagana. Ég verð fegin þegar frostinu fer að linna.

Ég er í fríi frá vinnu þar sem ég var í aðgerð á mjöðminni en settur var nýr liður í mig og það er svo ótrúlegt að ég sef betur og er verkjaminni strax eftir aðgerðina en ég var fyrir hana. Ég hefði aldrei trúað að það gæti orðið þannig. Núna er ég bara orðin óþolinmóð eftir að fá meiri styrk í fótinn til að geta farið að reyna að ganga án hækjunnar. Út fer ég hins vegar ekki án þess að vera með þær báðar. Á föstudaginn fór ég í saumatöku og það voru ,,stál hefti" í mér, ég var ekkert smá hissa og það var ekki undarlegt að mér yrði sérstaklega kalt á skurðsvæðinu ef ég fór ekki í kuldagalla þegar ég fór út!

Í dag ætlum við að fara á Selfoss til að hitta Lindu systur en hún, Helena og Guðrún komu í heimsókn til Íslands í nokkra daga. Það verður svo gaman að sjá þær en við höfum ekki sést síðan í apríl þegar þau komu til landsins til að ferma Guðrúnu. Skrítið að þessar litlu stelpur eru að verða fullorðnar. Ég eldist ekki jafn hratt og þær gera Grin. Við ætlum að hittast heima hjá Guðmundi og það verður gaman að sjá þau öll sömul og líka hann Ísak litla en ég sá hann síðast þegar Sölvi hélt upp á afmælið sitt.  Svo það er greinilegt að það verður nóg að gera í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það verður nú voða gaman að hitta Lindu og stelpurnar Ég bið að heilsa

Guðrún (IP-tala skráð) 30.11.2008 kl. 10:47

2 identicon

Það er alveg ótrúlegt að þér líði svona vel eftir aðgerina og að þér líði betur en þér leið fyrir aðgerina því það er svo stutt síðan þú varst í aðgerðinni. En það er bara æðislegt.

Hefði nú verið gaman að koma á Selfoss líka og hitta ykkur öll. EN það verður að bíða betri tíma. Þurfti að læra og Sölvi lítill laspúki.

Kveðja. Íris

Íris Dögg (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jórunn Helena Jónsdóttir

Höfundur

Jórunn Helena Jónsdóttir
Jórunn Helena Jónsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Taska aftan fra
  • Taska á hlid
  • Suzuki DR650
  • Suzuki DR650

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband